Tunglið er fylgihnöttur jarðar. Það er um 384.000 km frá jörðu. Ummál þess er 10.920 km og flatarmálið er 37.943.000 ferkílómetrar. Stórt afrek var unnið í geimvísindum þegar Neil Armstrong steig fyrstur manna á tunglið þann 20. júli 1969. Mörg geimför hafa verið send til tunglsins og aflað mikilvægra upplýsinga um fyrirbærið sem tunglið er.
|