|
Sjávarfjöll, flóð og fjara, stafa af þyngdarkrafti tunglsins á jörðina. Þessi þyngdarkraftur togar í sjóinn og veldur flóði á tveimur stöðum, fyrir neðan tunglið og hinum megin á jörðinni. Milli þessara staða er svo fjara. Af því að jörðin snýst um sjálfa sig, sem tekur sólarhring, verður flóð tvisvar á dag á flestum stöðum á jörðinni. Þessar sveiflur á hæð sjávarborðsins eru kölluð sjávarföll.
|