Jörðin er þriðja reikistjarnan frá sólu. Eins og aðrar reikistjörnur fer jörðin um sólina eftir sporbaugsbraut.
Jörðin snýst um möndul sinn um leið og hún hreyfist úr stað. Þessar hreyfingar, möndulsnúningur og brautarhreyfinging, skiptir sköpum um það hvernig dagur og nótt annars vegar og sumar og vetur hins vegar, skiptast stöðugt á hér á jörðinni. Fyrra fyrirbærið er kallað dægraskipti og það síðara árstíðaskipti. |